Emma að syngja frumsamið lag

Velkomin á heimasíðu Emmu Ýrar. Ekki gleyma að kvitta í gestabókinna!
 
  


 

Emma Ýrr Midsommer skvísa í Kalmar (Svíþjóð june 2008)

Ég heiti Emma Ýrr Hlynsdóttir og ég kom í heiminn 22 Júní 2004 klukkan 01:42. Þá var ég búin að láta bíða eftir mér síðan 8 Júní. Já, það vantaði sko alls ekki lætin þegar ég kom í heiminn. Ég var 4060 gr og 52 cm á lengd, með blá augu og ljóst hár. Mamma mín heitir Auður og pabbi minn heitir Hlynur Þór en þau monta sig á hverjum degi yfir því að eiga jafn fallega stelpu og mig. Leikskólinn minn heitir Rofaborg og þar er ég rosalega ánægð.  Ég er byrjuð að æfa ballet í balletskóla Sigríðar Ármans, og bráðum fæ ég að byrja í fótbolta..  Ég bý heima hjá mömmu og pabba til skiptis eða aðrahverja viku. Þannig ég bý á tveimur stöðum, hjá pabba í hraunbænum og mömmu á Kapellustíg :)





 
Emma Ýrr þreytt.......


 Krabba barn (21. júní - 21 júlí)

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.



 

 

 

 

 
  Ég er kominn með Email
Emma(Hjá)EmmaYrr.net
Made By xodus ehf - Sitetree  - 1 notandi að skoða vefinn núna.